Stefnt er að því að fjölga litlum og meðalstórum íbúðum á Ártúnsholti um allt að 280 til að vega upp á móti háu hlutfalli einbýlis- og raðhúsa í hverfinu. Gert er ráð fyrir að þessi fjölgun verði hægfara og á löngum tíma.
Fjölbreytt framboð íbúða stuðlar að betra jafnvægi í hverfinu og hefur jákvæð áhrif á nýtingu leik- og grunnskóla í hverfinu og nærþjónustu. Smærri íbúðir henta vel fyrir ungar fjölskyldur með börn á grunn- eða leikskólaaldri, sem og þá sem vilja minnka við sig innan hverfisins.
Hugmynd að framtíðaruppbyggingu fyrir Nethyl/Stangarhyl
Blönduð byggð með áherslu á íbúðir á efri hæðum og verslun og þjónustu á neðri hæðum, ásamt bættri lóðahönnun og fegrun umhverfis. Rauðar viðbætur sýna dæmi um mögulega þróun byggðar.
Nærþjónusta fyrir Ártúnsholt er skilgreind við bensínstöð við Straum og við Nethyl/Stangarhyl, ásamt annarri þjónustu og atvinnustarfsemi. Heimildir eru einnig fyrir léttri atvinnustarfsemi í íbúðabyggð.
Árbæjarsafn og menningarminjar við Rafstöðvarveg verða tengdar betur við hverfið með merktri leið milli safnsins og gömlu rafstöðvarinnar. Aðgengi að Elliðaárdal og aðliggjandi hverfum verður einnig bætt, m.a. með nýrri göngubrú yfir Vesturlandsveg.
Vistvænna Ártúnsholt í framtíðinni
Vistvænna og líflegra Ártúnsholt í framtíðinni þar sem Strengur hefur verið gerður að borgargötu með hverfistorgi, grenndarstöð, biðstöð almenningsvagna, stæðum fyrir deilibíla og hleðslustöðvum fyrir rafbíla.
Teikning: Pétur Stefánsson.
Styrkja á græn svæði á Ártúnsholti til að þau nýtist íbúum betur og auka trjágróður sem fellur vel að stefnumörkun um aukna kolefnisbindingu.
Viðkvæmt lífríki Elliðaárdalsins er verndað fyrir mengun frá byggðinni og settir skilmálar og leiðbeiningar um meðhöndlun ofanvatns í hverfinu. Þá er búið í haginn fyrir borgarbúskap og matjurtarækt á borgarlandi og lóðum í takt við áherslur um sjálfbærni og vistvænni hverfi.
Stefnt er að því að fjölga íbúðum í hverfinu um allt að 530 til að styrkja miðju borgarhlutans og bæta þjónustuframboð þannig að íbúar geti sótt helstu nauðsynjar í göngufæri frá heimilum sínum. Þessi fjölgun verður hægfara og á löngum tíma.
Möguleg þróun miðsvæðisins
Ásinn verður skilgreindur sem meginverslunarkjarni í borgarhlutanum með þjónustu á jarðhæðum og íbúðum á efri hæðum.
Nærþjónusta fyrir hverfið verður í hverfismiðjunni, Ásnum, sem er skilgreind sem meginverslunarkjarni í borgarhlutanum. Einnig verður skilgreint svæði fyrir nærþjónustu við Rofabæ 7–9 og 39. Þá eru heimildir fyrir létta starfsemi innan íbúðabyggðar rýmkaðar sem eykur mannlíf í hverfum og fjölgar atvinnutækifærum.
Við hverfistorgin eru fyrirhugaðar hleðslustöðvar fyrir rafbíla, möguleg stæði fyrir deilibíla, grenndarstöðvar og biðstöðvar fyrir almenningsvagna, en stefnt er að því að auka hlut almenningssamgangna með aukinni tíðni og bættri þjónustu.
Vistvænni Árbær í framtíðinni
Rofabær og Bæjarháls sem borgargötur með hverfistorgum, grenndarstöðvum, strætóstoppistöðvum, hleðslustöðvum rafbíla og stæðum fyrir deilibíla.
Teikning: Pétur Stefánsson.
Bæta á landnýtingu með því að heimila íbúðabyggð á þróunarsvæðum og fylgja eftir stefnu um aukna kolefnisbindingu með meiri trjágróðri í hverfinu.
Bæta á aðstæður til notkunar vistvænna orkugjafa með hleðslustöðvum fyrir rafbíla í borgarlandinu, s.s. við skóla og íþróttamannvirki.
Stefnt er að því að fjölga íbúðum í hverfinu um allt að 700 til að vega upp á móti háu hlutfalli einbýlis- og raðhúsa. Fjölgun íbúða verður hægfara og á löngum tíma.
Aukið framboð minni íbúða stuðlar að betra jafnvægi í hverfinu og hefur jákvæð áhrif á rekstur skóla, leikskóla og uppbyggingu nærþjónustu. Aukaíbúðir eru fyrst og fremst fyrir fjölskyldumeðlimi eða til útleigu. Óheimilt verður að selja þær frá aðalíbúð og má sameina þær síðar ef eigendur óska þess.
Hverfiskjarni við Selásbraut
Möguleg útfærsla með þjónustu á jarðhæð og íbúðum á efri hæðum.
Gert er ráð fyrir að nærþjónusta byggist upp við Selásbraut 98. Þar verður blönduð byggð íbúða, atvinnulífs, verslunar og þjónustu. Þá verða heimildir skýrðar fyrir léttri starfsemi innan íbúðabyggðar, enda styður slík starfsemi við atvinnusköpun og mannlíf.
Stefnt er að aukinni tíðni og bættri þjónustu Strætó í samgöngum hverfisins. Göngu- og hjólastígar við Selásbraut, næst grunnskólanum, verða endurbættir. Þá eru áform um nýja göngu- og hjólastíga sunnan við hverfið, á mörkum hesthúsahverfisins, yfir í Elliðaárdal og nýjan göngustíg meðfram Suðurlandsvegi.
Vistvænni Selás
Vistvænna Seláshverfi í framtíðinni. Selásbraut verður borgargata með strætósamgöngum og hverfistorgi með helstu innviðum sem íbúar þurfa að sækja. Umhverfi götunnar verður fegrað með trjágróðri, bættri lýsingu, bekkjum og fleiru til að auka gæði byggðarinnar og hverfisins.
Teikning: Pétur Stefánsson.
Almenningsrými eru víða í hverfinu og verður skerpt á sérkennum þeirra. Hljóðvarnir verða bættar með jarðvegsmönum eða öðrum hljóðvörnum meðfram Breiðholtsbraut, Suðurlandsvegi og Selásbraut, ásamt trjágróðri sem fegrar umhverfið og eykur skjól.
Búa á í haginn fyrir borgarbúskap og matjurtaræktun og bæta aðstæður fyrir notkun vistvænna orkugjafa, s.s. með hraðhleðslustöðvum við Selásskóla og við hverfistorgið á Selásbraut.
Leiðbeiningar hverfisskipulags eru nýjung í skipulagsmálum hérlendis og eru fylgiskjöl með öllum hverfisskipulagsáætlunum borgarinnar. Þær eru ekki tengdar einstökum hverfum eða skilmálaeiningum heldur eru algildar fyrir alla borgarhluta.
Leiðbeiningarnar eru skýringargögn með skýringarmyndum sem fylgja skal þegar skilmálar eru nýttir.